“Þið hafið kveikt eld fagnaðarerindisins þar sem hann virtist vera að slokkna.“

Páfi Leó XIV

Leó páfi hittir 1000 farandtrúkennara frá Nýkatekúmensku Göngunni.

Í morgun, 19. janúar 2026, tók Heilagur Faðir Leó XIV á móti yfir 1000 farandtrúkennurum í Salur blessunarinnar, sem bera ábyrgð á Nýkatekúmensku Göngunni í 138 löndum í heimsálfunum fimm.

Í lok móts sem haldið var í miðstöðinni „Þjónn Jahve“ í Porto San Giorgio (Fermo), undir leiðsögn alþjóðlegs leiðtogahóps Göngunnar, áttu Kiko Argüello, faðir Mario Pezzi og Maria Ascensión Romero sinn fyrsta fund með hinum Heilaga Föður, Leó XIV, í Róm.

Á mótinu, eins og ávallt hefur verið ár hvert frá upphafi Göngunnar, var reynslunni deilt af trúboði sem Gangan stendur fyrir í yfir 6200 sóknum í 1408 biskupsdæmum um allan heim, til að efla kristna innvígslu, sem verkfæri til að aðstoða biskupa og presta ýmissa landa við að boða vagnaðarerindið í heiminum í dag.

Einnig voru viðstaddir á mótinu og við áheyrnina hjá Heilögum Föður 115 rektorar trúprestaskóla biskupsdæmanna sem Gangan hefur hjálpað til við að opna í jafnmörgum biskupsdæmum, ásamt um hundrað annarra fræðimanna.

Á mótinu var hægt að sjá, út frá fjölbreyttri reynslu í ýmsum heimsálfum, þá erfiðu stöðu sem Kirkjan er kölluð til að framkvæma verkefni sitt í í dag. Í þessu alþjóðlega samhengi var greinilegt að sjá að Nýkatekúmenska Gangan er kölluð til að leggja sitt af mörkum að friði og mannlegri sátt og samlyndi, færa von kristins boðskapar, kerygmað, með myndun kristinna samfélaga sem geta gefið þessari kynslóð tákn um trú, kærleika og einingu.

Komu og brottför Páfans var fylgt eftir með miklu og gleðiríku lófataki og Kiko Argüello söng lög sem öll samkoman tók undir með af ákafa.

Kiko gaf Heilögum Föður eintak af helgimyndinni af Góða Pirðinum, sem hann málaði árið 1982, og ásamt því, þar sem Páfinn hyggst heimsækja Spán á næstu mánuðum, rit um dómkirkjuna í Madríd, Vora frú í La Almudena, þar sem Kiko málaði „Corona Misterica“ og lituðu apsis glergluggana árið 2004.

Leó páfi ávarpaði viðstadda með þessum orðum:

Ég vil láta í ljós þakklæti mitt til þeirra fjölskyldna sem, með því að taka á móti innri hvatningu Andans yfirgefa öryggi hversdagslífsins og leggja af stað í trúboð, jafnvel til fjarlægra og erfiðra landa, með þá einu löngun að boða fagnaðarerindið og vera vitni að kærleika Guðs.

Alþjóðleg teymi farandtrúboðanna, sem samanstanda af fjölskyldum, trúkennurum og prestum, taka þátt í trúboðsstarfi allrar kirkjunnar og … leggja sitt af mörkum til að „vekja“ trú þeirra „ekki-kristinna sem hafa aldrei heyrt talað um Jesú Krist“.

Að upplifa reynslu Nýkatekúmensku Göngunnar og halda trúboði hennar lifandi krefst einnig, af ykkar hálfu, innri árvekni og skynsamlegrar gagnrýninnar hugsunar, til að greina ákveðnar áhættur sem alltaf leynast í andlegu og kirkjulegu lífi.

Karismarnir verða alltaf að vera í þjónustu Guðsríkis og einnar kirkju Krists, þar sem engin gjöf Guðs er mikilvægari en önnur.

Það góða sem þið gerið er mikið, en tilgangur þess er að gera fólki kleift að þekkja Krist.

Haldið áfram í gleði og auðmýkt, með opinn huga, sem uppbyggjendur og vottar samfélagsins.

Kæru vinir, ég þakka ykkur fyrir kapp ykkar, fyrir gleðilegan vitnisburð ykkar, fyrir þjónustuna sem þið innið af höndum í kirkjunni og í heiminum. Ég hvet ykkur til að halda áfram af áhuga og ég blessa ykkur, um leið og ég ákalla yfir ykkur fyrir fyrirbæn Maríu meyjar, að hún megi fylgja ykkur og vernda. Þakka ykkur fyrir!


ÁVARP HANS HEILAGLEIKA PÁFA LEÓS XIV TIL LEIÐTOGA NÝKATEKÚMENSKU GÖNGUNNAR

Salur blessunarinnar
Mánudagur 19. janúar 2026

Í nafni föðurins, sonarins og hins heilaga anda.

Friður sé með yður!

Queridos hermano y hermanas, kæru bræður og systur, góðan dag og velkomin!

Það er mér heiður að hitta ykkur svona mörg. Ég heilsa meðlimum alþjóðlega teymis Nýkatekúmsku göngunnar, Kiko Arguello, María Acension Romero og sr. Mario Pezzi, sem og biskupunum og prestunum sem eru hér með ykkur.

Sérstök hugsun er send til fjölskyldnanna sem hér eru viðstaddar, sem er tjáning á trúboðsþrá ykkar og þeirri löngun sem hlýtur alltaf að vera lífgandi fyrir alla kirkjuna: að boða fagnaðarerindið öllum heiminum, svo að allir megi þekkja Krist.

Einmitt þessi löngun hefur alltaf verið innblástur og heldur áfram að næra líf nýkatekúmensku göngunnar, náðargáfu hennar og trúboðs- og trúfræðsluverk sem eru dýrmætt framlag til lífs kirkjunnar. Öllum, sérstaklega þeim sem hafa fjarlægst trú sína eða sem hafa veikst í trú sinni, bjóðið þið upp á möguleika á andlegri vegferð þar sem þau geta enduruppgötvað merkingu skírnarinnar, svo að þau geti þekkt náðargjöfina sem þau hafa þegið og þar með köllunina til að vera lærisveinar Drottins og vottar hans í heiminum.

Innblásin af þessum anda hafið þið kveikt eld fagnaðarerindisins þar sem hann virtist vera að deyja út og þið hafið fylgt mörgum einstaklingum og kristnum samfélögum, vakið þau á ný til gleði trúarinnar, hjálpað þeim að enduruppgötva fegurð þess að þekkja Jesú og hvatt þau til andlegs vaxtar og kapps til að gefa vitnisburð.

Sérstaklega, auk fræðenda og trúkennara, vil ég koma á framfæri þakklæti mínu til fjölskyldnanna sem, með því að taka á móti innri hvatningu andans, yfirgefa öryggi hversdagslífsins og leggja af stað í trúboð, jafnvel til fjarlægra og erfiðra landa, með þá einu löngun að boða fagnaðarerindið og vera vitni að kærleika Guðs. Þannig taka farandteymi, skipuð fjölskyldum, trúkennurum og prestum, þátt í trúboðsstarfi allrar kirkjunnar og, eins og Frans páfi sagði, leggja þau sitt af mörkum til að „vekja“ trú „ekki-kristinna“ sem hafa aldrei heyrt um Jesú Krist“, en einnig margra skírðra sem, þrátt fyrir að vera kristnir, „hafa gleymt […] hver Jesús Kristur er“ (Ávarp til meðlima Nýkatekumensku göngunnar, 6. mars 2015).

Að upplifa reynslu nýkatekúmensku göngunnar og framkvæma hlutverk hennar krefst einnig af ykkar hálfu innri árvekni og skynsamlegrar gagnrýninnar hæfni til að greina ákveðnar hættur sem alltaf leynast í andlegu og kirkjulegu lífi.

Þið bjóðið öllum upp á leið til að enduruppgötva skírnina, og þetta sakramenti, sem eins og við vitum, sameinar okkur Kristi og gerir okkur að lifandi meðlimum líkama hans, hans eina þjóð, hans eina fjölskylda. Við verðum alltaf að muna að við erum kirkjan og að ef andinn veitir hverjum einstaklingi sérstaka birtingu, þá er hún gefin – eins og Páll postuli minnir okkur á – „til almannaheilla“ (1. Kor 12:7) og þar af leiðandi fyrir sjálft hlutverk kirkjunnar. Náðargáfurnar eða karismarnir verða alltaf að vera í þjónustu Guðsríkis og hinnar einu kirkju Krists, þar sem engin gjöf Guðs er mikilvægari en önnur – nema kærleikurinn, sem fullkomnar og samræmir þær allar – og engin þjónusta ætti að verða ástæða til að finnast maður betri en aðrir bræður og systur og útiloka þau sem hugsa öðruvísi.

Þess vegna býð ég ykkur einnig, sem hafið kynnst Drottni og fylgið honum á Nýkatekúmensku Göngunni, að vera vitni að þessari einingu. Hlutverk ykkar er sérstakt en ekki einstakt; náðargáfa ykkar er sértæk en ber ávöxt í samfélagi við aðrar gjafir sem eru til staðar í lífi kirkjunnar; það góða sem þið gerið er mikið en tilgangur þess er að gera fólki kleift að þekkja Krist, alltaf með virðingu fyrir lífsleið og samvisku hvers og eins.

Sem verndarar þessarar sameiningar í andanum hvet ég ykkur til að lifa andlegu lífi ykkar án þess að aðskilja ykkur nokkurn tíma frá hinum kirkjulega líkama, sem lifandi hluti af venjulegri hirðisumönnun sókna og þeirra ýmsu veruleika, í fullu samfélagi við bræður ykkar og systur, sérstaklega við presta og biskupa. Haldið áfram í gleði og auðmýkt, með opinn huga, uppbyggileg og sem vottar samfélagsins.

Kirkjan fylgir ykkur, styður ykkur og er þakklát fyrir það sem þið gerið. Á sama tíma minnir hún alla á að „þar sem andi Drottins er, þar er frelsi“ (2. Kor 3:17). Þess vegna verður boðun fagnaðarerindisins, trúfræðslan og hin ýmsu form sálgæslustarfs alltaf að vera laus við hömlur, stífni og siðferðishyggju, svo að það veki ekki sektarkennd og ótta fremur en innri frelsun.

Kæru vinir, ég þakka ykkur fyrir skuldbindingu ykkar, fyrir gleðiríkan vitnisburð ykkar, fyrir þjónustuna sem þið innið af hendi í kirkjunni og í heiminum. Ég hvet ykkur til að halda áfram af áhuga og ég blessa ykkur, um leið og ég bið fyrir ykkur með fyrirbæn Maríu meyjar, að hún megi fylgja ykkur og vernda. Þakka ykkur fyrir!


Kiko Arguello: uppörvuð og þakklát Páfanum fyrir hvatningu hans.
Cammino Neocatecumenale Vatican News icon
Share: