Í hinum ýmsu tegundum trúboðs sem Gangan uppfyllir er nærvera einlífra karla og kvenna sem hafa fengið trúboðsköllun nauðsynleg til að styðja, fylgja og boða trúna, bæði í missio ad gentes og í farandhópum, prestaskólum og sóknum. Í alþjóðlegu samverunum eru því karlar og konur send af stað, þau sem lifa trúarvegferð Göngunnar og finna fyrir köllun Guðs til að fórna lífi sínu fyrir hið Nýja Trúboð.
Saman með öllum þessum bræðrum og systrum hafa hundruðir stúlkna, frá upphafi Nýkatekúmensku Göngunnar, fundið köllun til vígðs lífs og gengið í ýmis klaustur um allan heim eftir að hafa tekið kristna vígslu.