Árið 2006 vígði Benedikt XVI þessa nýju tegund boðunar með því að senda fyrstu 7 Missio ad gentes af stað. Hver þeirra samanstendur af presti ásamt 4-5 fjölskyldum með börnin sín. Að beiðni biskups fær fjölskyldan umboð til að boða kristni á svæðum sem hafa afkristnast eða eru heiðin, með það verkefni að sýna tilvist kristins samfélags sem er „algjörlega eitt, svo að heimurinn trúi“ (sjá Jóh 17,23).
Heilaguri Jóhannes Páll II, á VI Evrópu biskupasamkomunni 1985, benti á að til að bregðast við veraldarvæðingu Evrópu væri nauðsynlegt að snúa aftur til „upphaflega postulaformsins“.

Þannig koma þessi Missio ad gentes, líkt og “domus ecclesiae”, saman á heimilum, meðal óskírðra og þeirra sem eru langt í burtu frá trúnni.
Mörgum árum eftir fyrstu sendingu má sjá hvernig margir fjarlægir og heiðnir einstaklingar, sem kannski hefðu aldrei stigið fæti inn í kirkju, finna sig í þessum “kristnu samfélögum” og hefja vegferð til trúhverfingar eða endurkomu til trúarinnar.
Þessi samfélög, sem leggja ekki upp frá „heilögum stað“, frá „hofi“, heldur lifa í miðju heimsins, mynda eiginlega „garð heiðingjanna þar sem fólk getur nálgast Guð án þess að þekkja hann,“ eins og Benedikt XVI sagði í ræðu sinni fyrir Rómversku kúriuna árið 2009.
Eitt óvenjulegt einkenni þessarar reynslu eru ávextir samkenndar og einingu sem birtast fyrst og fremst innan fjölskyldunnar sjálfrar, milli foreldra og barna.
18. mars 2016 sendi Frans páfi 270 fjölskyldur og myndaði 54 nýjar Missio ad gentes í fimm heimsálfum. Á þessum fundi útskýrði páfinn hvernig þessi tegund trúboðs virkar: „Missio ad gentes eru stofnaðar eftir beiðni biskupa þeirra biskupsdæma sem þær eru sendar til og eru samsettar af 4 eða 5 fjölskyldum – flest með meira en 4 börn –, einum presti, einum karlmanni og tveimur systrum. Öll saman mynda þau samfélag sem hefur það verkefni að gefa tákn trúarinnar sem laða menn að fegurð guðspjallsins,“ sagði hann.
Benedikt páfi XVI sendi frá 2006 til 2012 58 Missio ad gentes og Frans páfi sendi 128.
5. maí 2018, í tilefni alþjóðafundarins til að fagna 50 ára afmæli fæðingar fyrsta samfélags Göngunnar í Róm, haldinn í Tor Vergata (Róm), sendi Frans páfi 34 nýjar Missio ad gentes.
Fjöldi fjölskyldna Göngunnar sem eru í trúboði núna (2020) fyrir nýja kristnitrúboðið er 1.640, með um 5.800 börn, í 108 löndum á 5 heimsálfum. Margar þessara fjölskyldna eru í trúboði í meira en 200 Missio ad gentes í 62 löndum.